Kanínur

Fyrstu kynni mín af kanínum voru þegar að ég hóf störf hjá Kanínumiðstöðinni í Njarðvík árið 1986. Þar var mitt aðalstarf að klippa angórukanínur. Auk þess gekk ég í öll almenn störf á búinu þ.m.t, fóðrun, pörun og umhirðu uppeldisdýra. Alls voru þarna 3000 kanínur þannig að nóg var að gera. Árið 1998 set ég sjálf upp kanínubú í Ásgarði og keypti ég Castor Rex kanínur og seinna meir Loop kanínur. Castor Rexinn kemur frá Hunkubökkum í Skaftafellssýslu, Þórisstöðum í Ölfusi, Laugardal í Skagafirði og Hrauni á Skaga í Skagafirði. Loop kanínurnar koma frá Trausta Tryggvasyni Stykkishólmi,Sandlæk á Skeiðum, Unnarholti í Hrunamanahrepp og Sauðanesvita við Siglufjörð. Kanínurnar eru skemmtileg dýr en þarnast mikillar umhirðu og þrifnaðar í búrum ef að þær eiga að þrífast vel. Mér hefur reynst best að hafa hálm undir þeim og gefa þeim gott rúlluhey í heygrindur. Ungarnir verða að fá eitthvað til viðbótar við heyið á vaxtartímanum og þá hefur bygg reynst ágætlega en enn er ég að þreifa fyrir mér með hvaða fóðurbætir er bestur fyrir þær. Aðal tekjurnar af búinu hafa verið sala á lífdýrum til annara bænda og einstaklinga. Einnig hef ég nýtt kjötið af þeim til heimilisins og sent skinnið til Copenhagen Fur Center sem er stærsta uppboðshús í heimi.

Ásgarðsbúið Ingibjörg R. Ingólfsdóttir & Herbert P. GuðmundssonÁsgarðiIS - 250 Garðurherbertp@simnet.is