Hænur

Hænu ævintýrið hjá okkur hófst með því að við fengum gefins 8 hænur og 1 hana frá kunningja okkar í Keflavík.Þær voru ættaðar frá Skúla Steins á Stokkseyri.Nokkru síðar bættust við 10 hænur og 2 hanar frá Garðyrkjustöðinni Lamhaga við Úlfarsfell. Við leggjum áheyrslu í okkar hænsarækt,litríkar hænur með rósakamba,toppskúf og fiðraðar fætur sem er í útrýmingarhættu í hinu annars mjög svo fjölbreytta stofni hér á landi.Við höfum ávallt til sölu hænuunga á flestum aldursstigum.Seljum einnig frjó hænuegg til annara ræktenda og frjáls hænuegg til matar.

Ásgarðsbúið Ingibjörg R. Ingólfsdóttir & Herbert P. GuðmundssonÁsgarðiIS - 250 Garðurherbertp@simnet.is